Skip to main content
Hvatning er oft það sem þarf

Fyrirlestrar

Fyrirlestrar Manino byggja á reynslu úr raunverulegum stjórnunar- og breytingaverkefnum. Þeir eru lifandi og hagnýtir, vekja fólk til umhugsunar og skilja eftir hugmyndir og verkfæri sem nýtast áfram.
Hægt er að velja úr fjölbreyttum viðfangsefnum eða fá fyrirlestur sérsniðinn að því sem er efst á baugi á vinnustaðnum hverju sinni.

Fyrirlestrar sem hreyfa við fólki og skapa samtal

Samskipti, verðmætasta auðlind vinnustaðarins?

Hvað gerist þegar samskipti virka og hvað kostar það þegar þau gera það ekki? Um traust, ábyrgð og samskipti sem grunn að góðu samstarfi og árangri.

Leiðtogar verða ekki til af sjálfu sér, eða er það?

Hvernig þróum við leiðtoga sem fólk vill fylgja? Um hlutverk stjórnandans, sjálfsþekkingu, ábyrgð og hæfileikann til að ná árangri í gegnum aðra.

Framtíðarsýnin, erum við öll að dansa í takt?

Framtíðarsýn skiptir litlu ef hún lifir aðeins á glærum. Hvernig sköpum við sameiginlegan skilning á því hvert við ætlum og fáum fólk með okkur?

Frá hópi í öflugt teymi

Hvað einkennir teymi sem ná árangri? Um traust, sameiginleg markmið, ólík hlutverk, ábyrgð og samvinnu.

Er upplifun viðskiptavina næsta sala?

Sérhver snerting við viðskiptavin skiptir máli. Um hvernig góð upplifun byggir upp traust, tryggð og langtímasamband við viðskiptavini.

Að sigla alla leið

Árangur gerist sjaldnast eftir beinni línu. Um þolinmæði, úthald og hæfileikann til að halda stefnu þegar breytingar taka tíma og árangurinn lætur bíða eftir sér.

Hybrid vinnustaðurinn, áskoranir og tækifæri

Hvernig byggjum við upp traust, tengsl og liðsheild þegar við erum ekki alltaf á sama stað? Um stjórnendur, samskipti og menningu á sveigjanlegum vinnustað.

Hamingja á vinnustað, alvara eða lúxus?

Hvað skapar vinnustað þar sem fólki líður vel og nær árangri? Um tengsl stjórnunar, samskipta, menningar, vellíðunar og frammistöðu.

Þegar enginn veit rétta svarið

Hvernig leiðum við fólk áfram þegar leiðin fram á við er ekki augljós? Um ákvarðanir, forgangsröðun, samskipti og forystu á tímum breytinga og óvissu.

Frá stefnu í framkvæmd

Góð stefna skilar litlu ef ekkert gerist í kjölfarið. Um hvernig við breytum stefnu í skýra forgangsröðun, ábyrgð, aðgerðir og árangur.

Sérsniðin lausn - Hér til hliðar sérðu nokkur dæmi!

Fyrirlestrar Manino eru sérsniðnir að því sem skiptir ykkur máli hverju sinni. Við viljum hreyfa við hlutum, skapa samtal og skilja eitthvað eftir sem nýtist áfram. Hægt er að fylgja fyrirlestri eftir með vinnustofu og taka umræðuna skrefinu lengra.

Er starfsdagur framundan eða nýtt upphaf?

Stundum þarf bara að taka samtalið. Ný sjónarhorn og góður innblástur geta hreyft við hugsun, skapað umræðu og gefið teyminu nýjan kraft.