Við vinnum með stjórnendateymum að því að styrkja samstarf og byggja upp traust. Með skýrari hlutverkum og opnari samskiptum skapast betri grundvöllur fyrir sameiginlega ábyrgð og árangur. Við leggjum áherslu á að efla vinnustaðamenningu þar sem virðing, samvinna og skýr sýn styðja daglegt starf. Stefnumótun verður þannig ekki aðeins skjalfest framtíðarsýn heldur lifandi leiðarljós sem endurspeglast í ákvörðunum og framkvæmd.
Nálgun okkar
Við vinnum í nánu samstarfi við stjórnendur og teymi.
Ráðgjöfin byggir á:
-
Virkri hlustun
-
Trausti og trúnaði
-
Hagnýtum aðferðum
-
Samvinnu og þátttöku
Markmiðið er að styrkja fólk til að leiða sjálft áframhaldandi þróun.
Fyrir hverja vinnum við?
-
Forstjóra og framkvæmdastjóra
-
Stjórnendateymi
-
Stjórnir og stjórnarformenn
-
Opinberar stofnanir og fyrirtæki í þróun eða umbreytingu
Ef þú vilt styrkja teymið þitt, skýra ábyrgð og skapa menningu sem styður árangur, þá erum við tilbúin í samtal.